Tindastóll hefur fengið til sín Hauk Eyþórsson sem raðað hefur inn mörkum fyrir Hvíta Riddarann í fjórðu deildinni.
Haukur sem er fæddur 1992 hefur allan sinn meistaraflokksferil leikið með Hvíta Riddaranum, skorað 49 mörk í 56 leikjum í deild og bikar.
Haukur sem er fæddur 1992 hefur allan sinn meistaraflokksferil leikið með Hvíta Riddaranum, skorað 49 mörk í 56 leikjum í deild og bikar.
Tindastóll er í tíunda sæti 2. deildarinnar, aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Riddarinn hefur fengið Arnar Þórarinsson frá Berserkjum en hann á að fylla skarð Hauks. Sindri Snær ólafsson frá Álftanesi og Finnbogi Rútur Finnbogason úr Aftureldingu eru einnig komnir til Mosfellinga.
Hvíti Riddarinn hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppni 4. deildarinnar.
Athugasemdir