Heimild: BBC
Celtic hefur áhuga á því að kaupa Scott Sinclair frá Aston Villa, en þetta staðfestir aðalliðsþjálfarinn John Kennedy.
Kennedy var spurður út í þær fréttir sem sögðu frá því að Aston Villa hefði hafnað tilboðum frá skosku meisturunum í Celtic.
Kennedy var spurður út í þær fréttir sem sögðu frá því að Aston Villa hefði hafnað tilboðum frá skosku meisturunum í Celtic.
Hann svaraði á eftirfarandi máta þegar hann fékk spurninguna.
„Það eru nokkrir leikmenn sem við erum að skoða," sagði Kennedy.
„Hann er einn af þeim sem hefur verið nefndur, en hann er enn leikmaður Aston Villa. Hann er án efa á þeim kalíber sem við erum að leita að."
Sinclair gekk til liðs við Aston Villa síðasta sumar frá Manchester City og lék hann 32 leiki fyrir Villa á síðasta tímabili. Nú gæti hann hins vegar skoðað aðra möguleika þar sem Aston Villa mun leika í Championship-deildinni á komandi tímabili.
Athugasemdir