Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 31. ágúst 2014 09:00
Magnús Már Einarsson
Balotelli fær ekki að taka vítin hjá Liverpool
Balotelli skoraði oft af vítapunktinum hjá Manchester City.
Balotelli skoraði oft af vítapunktinum hjá Manchester City.
Mynd: Getty Images
Þrátt fyrir að vera ein besta vítaskytta í heimi þá mun Mario Balotelli ekki fá að taka vítaspyrnurnar hjá Liverpool.

Balotelli er með magnaðan árangur í vítaspyrnum en hann klúðraði sinni fyrstu spyrnu á ferlinum með AC Milan í fyrra.

Hjá Liverpool hefur fyrirliðinn Steven Gerrard verið öruggur á punktinum og hann mun taka vítin áfram.

,,Mario spurði hver tekur vítin. Hann er frábær í vítaspyrnum og hann veit það sjálfur en Steven Gerrard tekur vítaspyrnurnar okkar," sagði Brendan Rodgers stjóri Liverpool.

Balotelli gæti spilað sinn fyrsta leik með Liverpool þegar liðið mætir Tottenham klukkan 12:30 í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner