Elvar Geir Magnússon skrifar frá KR-vellinum
Framundan er leikur KR og Stjörnunnar í Pepsi-deildin. Sannkallaður stórleikur! KR-ingar verða að vinna þennan leik til að halda sér í möguleika á að verja Íslandsmeistaratitil sinn.
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum
Öll efstu liðin hafa leikið 16 leiki. FH sem mætir Fjölni er efst með 38 stig, Stjarnan er með 36 og KR 32 í þriðja sætinu.
Það eru heldur betur forföll í öftustu línu Stjörnunnar. Martin Rauschenberg verður í banni í kvöld. Niclas Vemmelund sem leikið hefur í hægri bakverðinum verður einnig í banni vegna uppsafnaðra áminninga. Þá er Jóhann Laxdal á meiðslalistanum út tímabilið.
Heiðar Ægisson kemur inn í byrjunarlið Stjörnunnar frá síðasta deildarleik og einnig Veigar Páll Gunnarsson.
Hjá KR eru Gonzalo Balbi og Atli Sigurjónsson komnir á bekkinn. Jónas Guðni Sævarsson og Almarr Ormarsson koma inn.
Byrjunarlið KR:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Haukur Heiðar Hauksson
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Gary John Martin
8. Baldur Sigurðsson
10. Kjartan Henry Finnbogason
11. Óskar Örn Hauksson
14. Almarr Ormarsson
16. Jónas Guðni Sævarsson
18. Aron Bjarki Jósepsson
Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Ingvar Jónsson (m)
7. Atli Jóhannsson
8. Pablo Oshan Punyed Dubon
9. Daníel Laxdal
10. Veigar Páll Gunnarsson
11. Arnar Már Björgvinsson
12. Heiðar Ægisson
14. Hörður Árnason
16. Þorri Geir Rúnarsson
17. Ólafur Karl Finsen
24. Rolf Glavind Toft
Miðað við slæmt útlit um hádegisbil lúkkar allt þokkalega fyrir stórleikinn á KR-velli. Nokkur vindur þó #fotboltinet pic.twitter.com/3HcvLp0KQT
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) August 31, 2014
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir