Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. ágúst 2014 20:11
Magnús Már Einarsson
Javier Hernandez á leið til Real Madrid á láni
Mynd: Getty Images
Javier Hernandez, framherji Manchester United, er á leið til Real Madrid á láni út tímabilið.

Þetta segir Guillem Balague sérfræðingur Sky í spænska boltanum.

Hernandez er ósáttur við fá tækifæri hjá Manchester United en hann hefur verið orðaður við bæði Valencia og Juventus að undanförnu.

Real Madrid hefur hins vegar ákveðið að krækja í kappann á láni þar sem það þótti of dýrt að fá Radamel Falcao á láni frá Monaco.
Athugasemdir
banner