,,Þetta er afleitt," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir 4-2 tap gegn Fram á heimavelli í kvöld. Keflvíkingar hafa ekki unnið í tíu leikjum í röð og eru að sogast ofan í fallbaráttuna.
,,Ef við hefum nýtt fleiri færi í fyrri hálfleik þá hefði staðan verið önnur. Þá hefðum við kannski getað komið í seinni hálfleikinn með 3-0 forystu. Forystan var bara 1-0. Við vorum með leikinn í hendi okkar en það var allt slökkt hjá okkur í seinni hálfleik."

Lestu um leikinn: Keflavík 2 - 4 Fram
,,Menn komu inn á völlinn eftir hálfleik og héldu að þeir væru með þetta. Það var gengið frá okkur. Við verðum að hrósa Frömurum fyrir það hvernig þeir komu til baka og réðust á markið okkar því að ekki þurftu þeir margar tilraunir til þess að skora."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir