Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 31. ágúst 2014 15:36
Magnús Már Einarsson
Loic Remy til Chelsea (Staðfest)
Mynd: Chelsea
Chelsea hefur keypt framherjann Loic Remy frá Queens Park Rangers.

Arsenal reyndi að blanda sér í baráttuna um Remy á síðustu stundu en hann hefur nú gengið í raðir Chelsea á átta milljónir punda.

Remy var nálægt því að ganga til liðs við Liverpool fyrr í sumar en ekkert varð af þeim kaupum.

Á síðasta tímabili var Remy í láni hjá Newcastle en þessi 27 ára gamli leikmaður kom til QPR í janúar árið 2013.

Hjá Chelsea á Remy að fylla skarð Fernando Torres sem er farinn til AC Milan á láni.
Athugasemdir
banner
banner
banner