Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 31. ágúst 2014 06:00
Grímur Már Þórólfsson
Tottenham vongóðir um að fá Welbeck
Er Welbeck á förum?
Er Welbeck á förum?
Mynd: Getty Images
Danny Welbeck er talinn vera á förum frá Manchhester United en Louis van Gaal á að hafa sagt leikmanninum hann megi leita annað.

Welbeck á nú þegar að hafa rætt við Arsenal en Tottenham eru vongóðir um að fá leikmanninn. Þá eru fjölmörg önnur lið á eftir leikmanninum, til að mynda Schalke, Sunderland og Hull.

Danny Welbeck er uppallinn hjá Manchester United og ljóst að stuðningsmenn félagsins verða ekki sáttir ef hann verður seldur.

Annar uppalinn United leikmaður er einnig talinn vera á förum, Tom Cleverley en hann er líklega á leið til Valencia, Hull eða Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner