Borussia Dortmund hefur fengið Adnan Januzaj á láni frá Manchester United út tímabilið.
„Ánægður með að semja við Dortmund. Hlakka til tímabilsins," sagði Januzaj á Twitter nú rétt í þessu.
„Ánægður með að semja við Dortmund. Hlakka til tímabilsins," sagði Januzaj á Twitter nú rétt í þessu.
Hinn tvítugi Januzaj hefur komið við sögu hjá Manchester United á þessu tímabili en hann skoraði meðal annars sigurmarkið gegn Aston villa á dögunum.
Manchester United er að kaupa Anthony Martial frá Monaco og því hefur félagið ákveðið að leyfa Januzaj að fara á lán.
Januzaj hafði fyrr í mánuðinum verið orðaður við önnur ensk félög á láni en hann mun nú eyða vetrinum í Þýskalandi.
Athugasemdir