Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 31. ágúst 2015 17:22
Ívan Guðjón Baldursson
Alex Song lánaður til West Ham (Staðfest)
Mynd: West Ham
West Ham United hefur tekist að landa kamerúnska miðjumanninum Alex Song.

Song átti gott tímabil með Hömrunum þegar þeir fengu hann lánaðan í fyrra og verður hann góð viðbót við sterka miðju.

Song verður 28 ára eftir rúma viku og lék 28 deildarleiki hjá West Ham á síðasta tímabili.

Song gerði garðinn frægan hjá Arsenal sem seldi hann til Barcelona fyrir þremur árum, á 15 milljónir punda.

Song náði aldrei að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Börsunga og lék 39 deildarleiki fyrir félagið áður en hann var lánaður til Hamranna í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner