Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 31. ágúst 2015 16:54
Ívan Guðjón Baldursson
Awoniyi til Liverpool - Lánaður til Frankfurt (Staðfest)
Mynd: www.sl10.ng
Liverpool er búið að kaupa 18 ára sóknarmann frá Nígeríu á 400 þúsund pund.

Taiwo Awoniyi heitir leikmaðurinn og er enska félagið strax búið að lána hann til Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.

Í kaupsamningnum er sérstakt ákvæði sem gefur Imperial Soccer Academy, félaginu sem Awoniyi ólst upp hjá, væna prósentu af næstu sölu leikmannsins.

Liverpool lánaði einnig Samed Yesil út og mun þessi 21 árs sóknarmaður spila fyrir FC Luzern út tímabilið. Yesil var keyptur frá Bayer Leverkusen fyrir þremur árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner