Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 31. ágúst 2015 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Dieumerci Mbokani til Norwich (Staðfest)
Mynd: Twitter
Dieumerci Mbokani er kominn til Norwich City á lánssamning út tímabilið.

Kaupákvæði fylgir lánssamningnum fyrir þennan sóknarmann sem skorar um það bil í öðrum hverjum leik sem hann spilar.

Mbokani verður 30 ára í nóvember og hefur gert 16 mörk í 33 deildarleikjum fyrir Dinamo Kiev síðan hann kom til félagsins fyrir tveimur árum.

Mbokani mun berjast um byrjunarliðssæti við Cameron Jerome sem er ekki búinn að skora í fyrstu fjórum úrvalsdeildarleikjum sínum með Norwich.
Athugasemdir
banner
banner
banner