Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 31. ágúst 2015 10:42
Magnús Már Einarsson
Dortmund í viðræðum um að fá Januzaj á láni
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund á í viðræðum við Manchester United um að fá Adnan Januzaj á láni.

Everton, Tottenham, Marseille og Valencia vilja líka fá Januzaj á láni en líklegast er að hann fari til Dortmund.

Hinn tvítugi Januzaj hefur komið við sögu hjá Manchester United á þessu tímabili en hann skoraði meðal annars sigurmarkið gegn Aston villa á dögunum.

Januzaj var þó ekki með gegn Swansea um helgina en forráðamenn United gáfu þær skýringar að hann væri meiddur á mjöðm.
Athugasemdir
banner
banner
banner