Crystal Palace er búið að samþykkja tilboð frá nýliðum Bournemouth í sóknarmanninn Glenn Murray.
Murray átti stóran þátt í því að koma Palace upp í úrvalsdeildina fyrir þremur árum en hefur síðan þá misst sæti sitt í byrjunarliðinu.
Murray átti stóran þátt í því að koma Palace upp í úrvalsdeildina fyrir þremur árum en hefur síðan þá misst sæti sitt í byrjunarliðinu.
Palace hafnaði 3 milljón punda tilboði í Murray í byrjun ágúst en er nú búið að samþykkja nýtt tilboð, sem getur numið 5 milljónum punda ef ákveðin ákvæði verða virkjuð.
Murray hefur ekki fundið sig í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann hefur einungis skorað 8 mörk í 33 leikjum.
Athugasemdir