Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 31. ágúst 2015 20:10
Ívan Guðjón Baldursson
Ibarbo er á leið til Watford - Læknisskoðun á morgun
Mynd: Getty Images
Victor Ibarbo, 25 ára sóknartengiliður sem á 15 landsleiki að baki fyrir Kólumbíu, fer í læknisskoðun hjá Watford á morgun.

Ibarbo kemur á láni frá Roma, sem keypti hann frá Cagliari á 15 milljónir evra.

Ibarbo spilaði 10 leiki fyrir Roma frá komu sinni í janúar en átti fyrir það 111 deildarleiki að baki fyrir Cagliari.

Ibarbo er búinn að vera mikilvægur partur af kólumbíska landsliðinu síðustu 18 mánuði og var byrjunarliðsmaður á HM, þar sem Kólumbía datt út gegn Brasilíu í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner