Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 31. ágúst 2015 11:35
Arnar Geir Halldórsson
Ivan Perisic til Inter (Staðfest)
Ivan Perisic
Ivan Perisic
Mynd: Getty Images
Króatíski kantmaðurinn Ivan Perisic er genginn til liðs við Inter Milan frá Wolfsburg.

Ítalska félagið mun allt í allt borga tæpar 15 milljónir punda fyrir þennan 26 ára króatíska landsliðsmann.

Perisic hefur leikið 70 deildarleiki fyrir Wolfsburg síðan hann kom til félagsins frá Borussia Dortmund fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Hann var í stóru hlutverki hjá liðinu í fyrra þegar það náði 2.sæti í Bundesligunni.

Hann gerir fimm ára samning við Inter sem hefur farið vel af stað í Serie A í ár en liðið er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Roberto Mancini hefur verið virkur á leikmannamarkaðnum í sumar og meðal leikmanna sem hafa komið til félagsins ber helst að nefna Geoffrey Kondogbia, Joao Miranda og Stevan Jovetic.
Athugasemdir
banner
banner