Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, er í skýjunum með að Kevin De Bruyne sé genginn til liðs við félagið frá Wolfsburg.
Kompany og De Bruyne eru félagar hjá belgíska landsliðinu og City gekk i gær frá kaupunum á þeim síðarnefnda. Er hann einn dýrasti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Kompany og De Bruyne eru félagar hjá belgíska landsliðinu og City gekk i gær frá kaupunum á þeim síðarnefnda. Er hann einn dýrasti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
„Hann er ótrúlega hæfileikaríkur. Hann getur lagt upp og skorað svo ótrúlega mörg mörk," sagði Kompany.
„Það skiptir í raun ekki máli hvernig leikurinn er að spilast, hann nær alltaf að koma með lykilsendingar."
„Þetta er það sem maður er að borga fyrir að fá yfir tímabilið, fleiri mörk og fleiri stoðsendingar. Hann býr yfir einhverju einstöku."
Athugasemdir