Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 31. ágúst 2015 14:35
Magnús Már Einarsson
Marca: Real Madrid nær samkomulagi um kaup á De Gea
Ánægður.
Ánægður.
Mynd: Getty Images
Spænska íþróttablaðið Marca segir að Real Madrid og Manchester United hafi loksins náð samkomulagi um kaupverð fyrir David De Gea.

De Gea hefur verið orðaður við Real Madrid í marga mánuði og nú virðast skiptin ætla að verða að veruleika.

Kaupverðið verður einhversstaðar á bilinu 22 til 25 milljónir punda.

De Gea hefur ekki verið í leikmannahópi Manchester United á þessu tímabili en nú er útlit fyrir að hann gangi í raðir Real Madrid áður en félagaskiptaglugginn á Spáni lokar í kvöld.

Samkvæmt fréttum frá Spáni þá gæti Manchester United keypt markvörðinn Keylor Navas frá Real Madrid í staðinn. Sergio Romero hefur varið mark United í upphafi tímabils en hann var ekki sannfærandi í tapinu gegn Swansea í gær.
Athugasemdir
banner
banner