mán 31. ágúst 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Martial á leið til Manchester United
Mynd: Getty Images
Anthony Martial, framhherji Monaco, er á leið til Manchester United samkvæmt fréttum frá Frakklandi.

Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, hefur gefið Martial leyfi til að fara úr herbúðum landsliðsins og skrifa undir hjá Manchester United.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talað er um að það sé 36 milljónir punda.

Martial er 19 ára gamall en hann verður tvítugur í desember næstkomandi.

Á síðasta tímabili skoraði hann átta mörk í 31 leik með Monaco í frönsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner