Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 31. ágúst 2015 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Matri til Lazio (Staðfest) - West Ham missti af honum
Mynd: Getty Images
West Ham United misstu af Alessandro Matri sem virtist vera á leið til félagsins undir lok félagsskiptagluggans.

Matri hefur þess í stað verið lánaður til Lazio, sem er hans fimmta félag á tveimur árum.

Matri kom til Milan frá Juventus fyrir tveimur árum. Hjá Juventus gerði góða hluti í tvö ár en fann sig aldrei hjá Milan, sem lánaði hann til Fiorentina, Genoa og Juventus næstu tímabil.

Matri hefur nú verið lánaður til Lazio, en þessi 31 árs gamli sóknarmaður á yfir 200 leiki að baki í efstu deild á Ítalíu þar sem hann hefur skorað yfir 70 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner