Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 31. ágúst 2015 17:49
Ívan Guðjón Baldursson
Raul Garcia til Bilbao (Staðfest) - Bað um sölu
Mynd: Getty Images
Raul Garcia er 29 ára gamall miðjumaður sem á yfir 200 deildarleiki að baki fyrir Atletico Madrid síðustu átta ár.

Garcia er búinn að vera mikilvægur partur af goðsagnakenndu liði Atletico sem sló meðal annars Barcelona úr Meistaradeild Evrópu í apríl 2014 og vann Ofurbikarinn gegn Real Madrid nokkrum mánuðum síðar.

Garcia bað um sölu frá Atletico og er Athletic Bilbao búið að setja söluákvæði í samninginn hans sem segir að hann sé ekki falur nema kaupandi greiði 40 milljónir evra, eða 30 milljónir punda, fyrir hann.

Garcia skrifaði undir fjögurra ára samning við Bilbao og ljóst er að hann verður mikill liðsstyrkur fyrir Baskana. Garcia er talinn hafa kostað Bilbao um 10 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner