Fjórða umferðin í ensku úrvalsdeildinni er að baki og Goal.com hefur opinberað úrvalslið helgarinnar. Manchester City er með fullt hús stiga á toppnum og Raheem Sterling er í liðinu eftir frammistöðu sína um helgina.
Damien Delaney og Yannick Bolasie hjálpuðu Crystal Palace að leggja Chelsea óvænt. Graziano Pelle og Dusan Tadic voru í stuði þegar Southampton sigraði Norwich í gær.
Tim Howard varði oft frábærlega í markalausu jafntefli Everton og Tottenham. Winston Reid og Manuel Lanzini voru öflugir í 3-0 útisigri West Ham á Liverpool.
Andre Ayew skoraði í sigri Swansea á Manchester United, Santi Cazorla átti góðan dag þegar Arsenal sigraði Newcastle á útivelli og West Morgan var seigur í vörn Leicester gegn Bournemouth.
Fyrri úrvalslið helgarinnar
Athugasemdir