Varnarmaðurinn Allan Nyom er genginn í raðir West Bromwich Albion frá Watford, en þetta staðfesti síðarnefnda félagið á Twitter síðu sinni. Kaupverðið er ekki gefið upp.
Nyom yfirgefur Watford eftir einungis eitt tímabil, en hann gekk í raðir félagsins sumarið 2015 frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Udinese.
Nyom er 28 ára gamall landsliðsmaður Kamerún og á að baki 14 leiki fyrir þjóð sína. Hann lék aldrei fyrir Udinese heldur var lánaður í sex ár samfleytt til spænska félagsins Granada.

Nyom lék 32 leiki í deild og fjóra leiki í bikar fyrir Watford á síðustu leiktíð.
Athugasemdir