Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 31. ágúst 2016 20:30
Alexander Freyr Tamimi
Diego Lopez til Espanyol (Staðfest)
Diego Lopez er farinn frá AC Milan.
Diego Lopez er farinn frá AC Milan.
Mynd: Getty Images
Spænski markvörðurinn Diego Lopez er genginn í raðir Espanyol frá AC Milan. Þetta staðfesti spænska úrvalsdeildarfélagið.

Lopez er 34 ára gamall og hafði verið á mála hjá AC Milan frá árinu 2014. Spilamennskan var hins vegar af skornum skammti eftir að hinn ungi Gianluigi Donnarumma hirti byrjunarliðssætið af honum.

Lopez lék áður með Real Madrid tímabilið 2013-2014 og tókst að festa sig í sessi sem aðalmarkvörður. Sló hann Iker Casillas út úr liðinu.

Lopez á einn landsleik að baki fyrir Spán.



Athugasemdir
banner
banner