Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 31. ágúst 2016 22:03
Alexander Freyr Tamimi
Dieumerci Mbokani í Hull (Staðfest)
Dieumerci Mbokani var öflugur með Norwich.
Dieumerci Mbokani var öflugur með Norwich.
Mynd: Getty Images
Hull City hefur fengið framherjann Dieumerci Mbokani á láni út tímabilið frá Dynamo Kiev. Möguleiki er á að Hull kaupi leikmanninn að lánsdvöl lokinni.

Hinn þrítugi Mbokani lék síðasta tímabil með Norwich og skoraði sjö mörk í 29 úrvalsdeildarleikjum. Hann er fyrrum landsliðsmaður Lýðveldisins Kongó.

Mbokani gekk í raðir Standard Liege árið 2007 og fór til Monaco og síðar Anderlecht. Árið 2013 gekk hann í raðir Dynamo Kiev áður en hann var lánaður í Norwich.

Mbokani hafði skorað 16 mörk í 35 landsleikjum áður en hann lagði landsliðsskóna á hilluna í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner