Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 31. ágúst 2016 20:53
Alexander Freyr Tamimi
Everton lánar McGeady til Preston (Staðfest)
Aiden McGeady hefur verið lánaður til Preston.
Aiden McGeady hefur verið lánaður til Preston.
Mynd: Getty Images
Írski landsliðsmaðurinn Aiden McGeady er genginn í raðir Preston North End á láni frá Everton út tímabilið. Preston spilar í Championship-deildinni.

Þessi þrítugi fyrrum leikmaður Celtic á að baki 85 landsleiki fyrir Írland, en hann fékk leyfi til að sleppa landsleik í kvöld til að klára pappírsvinnu.

McGeady er 30 ára gamall og hefur auk Celtic og Everton verið á mála hjá Spartak Moskvu í Rússlandi. Hann var lánaður til Sheffield Wednesday á seinni hluta síðasta tímabils.
Athugasemdir
banner
banner