Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 31. ágúst 2016 17:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David Luiz í Lundúnum - Tók „selfie" með stuðningsmönnum
David Luiz er að semja við Chelsea
David Luiz er að semja við Chelsea
Mynd: Getty Images
Það er orðið nokkuð ljóst að miðvörðurinn David Luiz sé á leið aftur til Chelsea.

Sky fréttastofan greindi frá því fyrr í dag að hann væri á leið í læknisskoðun og nú fyrir stuttu var sagt frá því að hann væri mættur á St. Pancras-lestarstöðina í Lundúnum. Þar stoppaði hann og tók „selfie" með þeim stuðningsmönnum sem vildu.

„Ég get ekki tjáð mig um málið," sagði Brasilíumaðurinn þegar hann var spurður út í Chelsea, en hann virtist mjög ánægður að vera kominn aftur til Lundúna.

Chelsea seldi Luiz til Paris Saint-Germain í Frakklandi fyrir tveimur árum og þá varð hann dýrasti varnarmaður heims. Nú er hann á leið aftur til Chelsea og hefur verið talað um að hann kosti eitthvað í kringum 30 milljónir punda.

Hér að neðan má sjá tíst sem tengjast málinu.




Athugasemdir
banner
banner
banner