Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 31. ágúst 2016 21:27
Alexander Freyr Tamimi
Hart þakkar stuðningsmönnum Manchester City
Joe Hart er farinn frá City.. í bili allavega.
Joe Hart er farinn frá City.. í bili allavega.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Joe Hart hefur skrifað hjartnæmt bréf á Facebook síðu sína þar sem hann þakkar stuðningsmönnum Manchester City fyrir góða tíma.

Enski landsliðsmarkvörðurinn hefur verið lánaður til ítalska félagsins Torino en þó hann sé samningsbundinn City til 2019 virðist dvöl hans þar vera á enda.

Frá því að Pep Guardiola tók við City var ljóst að Hart væri á förum. Spánverjinn vildi ekkert nota hann nema í einum leik í undankeppni Meistaradeildarinnar.

Hart skrifaði eftirfarandi:

„Ég vil bara nota tækifærið og kasta kveðju á alla ótrúlegu stuðningsmenn Manchester City sem hafa reynst mér svo vel."

„Þetta hafa verið erfiðar vikur en þær munu aldrei skyggja á það ótrúlega ferðalag og þá lífsreynslu sem frábæra félagið ykkar hefur gefið mér."

„Frá því að ég skrifaði undir árið 2006 hafa félagið og stuðningsmenn þess leyft mér að upplifa hluti sem ég hefði aldrei trúað að ég myndi upplifa og ég er mjög þakklátur fyrir það."

„Fótboltinn er brjáluð íþrótt og vegna aðstæðna hefst nú nýr kafli í lífi mínu og ég er mjög þakklátur Torino að gefa mér tækifæri til að spila fyrir það frábæra félag."

„En tilfinningarnar sem ég upplifði í leiknum gegn Steaua Búkarest á dögunum (lokaleiknum fyrir City) munu lifa með mér að eilífu. Þú getur ekki keypt slíkar tilfinningar og það verður erfitt að upplifa þær aftur. Takk kærlega fyrir þá upplifun og allar frábæru minningarnar."

„Það er mikið af frábæru fólki á bakvið tjöldin hjá félaginu og félagið er á réttri leið, svo ég vil óska Manchester City, starfsfólki, öllum leikmönnum og auðvitað stuðningsmönnunum alls hins besta á tímabilinu og í framtíðinni."


Hart varð enskur meistari í tvígang, bikarmeistari einu sinni og deildabikarmeistari í tvígang sem leikmaður Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner