Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 31. ágúst 2016 20:19
Alexander Freyr Tamimi
Hull fær annan leikmann frá Manchester United (Staðfest)
Weir er genginn til liðs við Hull.
Weir er genginn til liðs við Hull.
Mynd: Hull City
Hull City hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum James Weir frá Manchester United fyrir óuppgefna upphæð.

Weir er annar leikmaðurinn sem Hull fær frá United á tveimur dögum, en Will Keane gekk í raðir félagsins í gær.

Weir var fyrirliði U21 liðs United á síðasta tímabili en hann hefur verið á mála hjá rauðu djöflunum síðan 2008.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið í 3-2 sigri gegn Arsenal á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner