Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 31. ágúst 2016 19:06
Alexander Freyr Tamimi
Liverpool lánar Wisdom til Austurríkis (Staðfest)
Andre Wisdom í leik með Liverpool.
Andre Wisdom í leik með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Andre Wisdom er genginn í raðir austurrísku meistaranna í Red Bull Salzburg á láni frá Liverpool út tímabilið.

Þessi 23 ára gamli Englendingur spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í 5-3 sigri gegn Young Boys í Evrópudeildinni árið 2012 en hefur einungis tekist að spila 22 leiki fyrir félagið.

Wisdom var á láni hjá Norwich á síðustu leiktíð en hefur einnig verið lánaður til Derby og West Brom.

Hann gæti spilað fyrsta leik sinn fyrir Salzburg er liðið mætir Admira í deildinni á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner