Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 31. ágúst 2016 19:54
Alexander Freyr Tamimi
Mario Balotelli í Nice (Staðfest)
Balotelli verður tæplega saknað á Anfield.
Balotelli verður tæplega saknað á Anfield.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli er genginn í raðir franska úrvalsdeildarfélagsins Nice frá Liverpool, en þetta hafa bæði félögin staðfest. Talið er að Nice fái Balotelli frítt.

Ítalski framherjinn var ekki hluti af framtíðaráformum knattspyrnustjórans Jurgen Klopp eftir að hafa mistekist að stimpla sig inn í Bítlaborginni. Var hann lánaður til AC Milan á síðasta tímabili eftir einungis eitt tímabil á Anfield.

Í tilkynningu frá Liverpool er Balotelli óskað velfarnaðar í framtíðinni. Hann lék 28 leiki fyrir Liverpool og skoraði einungis fjögur mörk.



Athugasemdir
banner
banner