Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 31. ágúst 2016 19:34
Alexander Freyr Tamimi
Nice að ganga frá kaupum á Balotelli
Balotelli er á förum frá Liverpool.
Balotelli er á förum frá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky Sports er franska úrvalsdeildarfélagið Nice að ganga frá kaupunum á Mario Balotelli.

Balotelli fékk í sumar þau skilaboð frá Jugen Klopp að hann mætti finna sér nýtt félag, en honum tókst engan veginn að heilla neinn hjá Liverpool eftir að hann gekk í raðir félagsins.

Balotelli var orðaður við nokkur félög á Ítalíu auk þess sem FC Sion í Sviss sýndi áhuga.

Hinn 26 ára gamli Balotelli hefur skorað fjögur mörk í 28 leikjum með Liverpool síðan hann kom frá AC Milan á 16 milljónir punda fyrir tveimur árum. Var hann á láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner