Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 31. ágúst 2016 17:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nkoudou til Tottenham (Staðfest) - N'Jie í hina áttina
Nkoudou er mættur til Tottenham
Nkoudou er mættur til Tottenham
Mynd: Twitter
Tottenham er búið að staðfesta kaup á Georges-Kevin Nkoudou, en hann kemur til Lundúnarfélagsins frá Marseille í Frakklandi.

Nkoudou er 21 árs gamall vængmaður, en hann spilaði með Marseille á síðustu leiktíð og þar áður var hann hjá Nantes.

Sem hluti af samningnum hefur Tottenham ákveðið að lána sóknarmanninn Clinton N'Jie til Marseille.

Nkoudou virtist staðfesta félagsskiptin í gær þegar hann setti mynd af móttó félagsins á Twitter-aðgang sinn.

Það er nú orðið staðfest að hann er kominn til Tottenham, en hann skrifaði undir samning til ársins 2021.



Athugasemdir
banner
banner
banner