Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 31. ágúst 2016 18:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Raggi Sig að fá nýja liðsfélaga - Martin og Adebayor á leiðinni
Chris Martin er á leið til Fulham
Chris Martin er á leið til Fulham
Mynd: Getty Images
Fulham er í viðræðum um kaup á framherjanum Chris Martin frá Derby. Frá þessu segir Sky fréttastofan.

Fulham missti af Asamoah Gyan þar sem hann ákvað að elta aurinn og fara til Al-Ahli í Dubai.

Enska Championship-deildarliðið er þó áfram í viðræðum við framherjann Emmanuel Adebayor eins og greint var frá fyrr í dag og þá er Chris Martin væntanlega einnig á leið til liðsins.

Martin er eins og áður segir framherji, en hann var keyptur til Derby fyrir þremur árum og hefur síðan þá skorað 53 mörk í 117 leikjum fyrir félagið.

Það er spurning hvað gerist hjá Fulham og hvort Adebayor og Martin semji báðir, en eins og flestir ættu að kannast við þá gekk Ragnar Sigurðsson í raðir Fulham á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner