Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mið 31. ágúst 2016 22:21
Mist Rúnarsdóttir
Sandra Sig: Gott að vinna toppliðið
Sandra átti flottan leik í kvöld
Sandra átti flottan leik í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Þetta var háspennuleikur, eins og hefur verið á móti Stjörnunni í sumar,” sagði markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir eftir dramatískan 2-1 sigur á Stjörnunni.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Stjarnan

„Mér fannst þetta bara gaman. Ég naut mín vel og þetta var örugglega skemmtilegur leikur að horfa á. Bara gaman sko.”

„Við ætluðum að halda áfram að bæta þá fínu spilamennsku sem hefur verið hjá okkur í sumar. Þetta hefur verið smá kaflaskipt á tímum en við vildum bara mæta snælduvitlausar eins og við reynum að gera hvern einasta leik og við ætluðum að reyna að taka þrjú stig og það á heimavelli þannig að það tókst.”


Margir vildu meina að Valur hefði kvatt toppbaráttuna eftir að hafa tapað gegn ÍBV í þarsíðustu umferð en með sigrinum í kvöld komast Valsarar aftur á sporið.

„Við ætlum auðvitað bara að reyna að ná í þau stig sem eru eftir í pottinum og sjá hverju það skilar okkur. Hvort sem það skilar okkur eitthvað ofar eða ekki. Það verður bara að koma í ljós.”

Sandra átti virkilega góðan leik í kvöld og það gegn sínum gömlu félögum. Aðspurð um það hvort að það hafi verið extra sætt að vinna gamla liðið sitt sagði Sandra að aðalatriðið væri að ná sigri en auðvitað væri gaman að vinna toppliðið.

„Það er bara alltaf gott að vinna. Auðvitað er gott að vinna á móti Stjörnunni sem er toppliðið í dag þannig að jú, auðvitað er það geggjað, en eins og hver annar sigur í rauninni.”

„Ég er sátt útaf því að við vinnum en hefði nú viljað gera betur í markinu. Það er bara eins og það er."

Athugasemdir
banner
banner
banner