Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 31. ágúst 2016 21:53
Alexander Freyr Tamimi
Sky: Enner Valencia orðinn leikmaður Everton
Enner Valencia ku vera orðinn leikmaður Everton.
Enner Valencia ku vera orðinn leikmaður Everton.
Mynd: Getty Images
Enner Valencia er genginn í raðir Everton á láni út tímabilið frá West Ham samkvæmt Sky Sports. Jafnframt mun félagið geta keypt hann á 14,5 milljónir punda eftir tímabilið.

Valencia hafði verið sterklega orðaður við Swansea fyrr í vikunni en síðar kom í ljós að ekkert yrði að vistaskiptum hans þangað.

Ekvadorski landsliðsmaðurinn kom til West Ham á tólf milljónir punda fyrir tveimur árum síðan frá Pachuca í Mexíkó. Hann hefur spilað talsvert í byrjun tímabilsins og kom því nokkuð á óvart að hann væri á förum frá félaginu, enda á hann þrjú ár eftir af samningi sínum.

Valencia hefur skorað 16 mörk í 29 landsleikjum fyrir Ekvador, en hann hefur skorað 10 mörk í 61 leikjum fyrir West Ham.
Athugasemdir
banner
banner
banner