Stoke hefur lánað spænska framherjann Joselu til Deportivo La Coruna í heimalandinu. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni.
Joselu gekk í raðir Stoke frá Hannover síðasta sumar og skoraði fjögur mörk á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur hins vegar fallið aftar í goggunarröðinni á tímabilinu og einungis einu sinni verið í hóp á tímabilinu, gegn Stevenage í deildabikarnum.

Ljóst var að koma Wilfried Bony til Stoke frá Manchester City ýtti Joselu enn aftar í röðinni og fékk hann því grænt ljós á að finna sér annað félag. Deportivo var niðurstaðan og verður hann þar á láni út tímabilið.
Athugasemdir