Sóknarmaðurinn Enner Valencia verður ekki lánaður frá West Ham til Swansea.
Talað var um það fyrr í dag að Valencia gæti mögulega farið til Swansea á láni, en greinir Sky Sports frá því að ekkert verður að því.
Talað var um það fyrr í dag að Valencia gæti mögulega farið til Swansea á láni, en greinir Sky Sports frá því að ekkert verður að því.
Valencia kom til West Ham á tólf milljónir punda fyrir tveimur árum síðan frá Pachuca í Mexíkó.
Hann hefur spilað talsvert í byrjun tímabilsins og búist er við því að hann verði áfram í herbúðum West Ham.
Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum hjá West Ham.
Athugasemdir