Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. október 2014 17:02
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Þróttar 
Ási Haralds ráðinn aðstoðarþjálfari Þróttar (Staðfest)
Ásmundur Haraldsson.
Ásmundur Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Guðni Haraldsson verið ráðinn aðstoðarþjálfari Þróttar en hann mun starfa með Gregg Ryder. Ásmundur mun að auki þjálfa 2. flokk Þróttar en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ásamt störfum sínum fyrir Þrótt mun hann starfa áfram sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu.

Ási hefur áður verið yfirþjálfari bæði hjá Gróttu og Stjörnunni, ásamt því að þjálfa meistaraflokk karla hjá Gróttu í mörg ár.

Ási gerir tveggja ára samning við Þrótt en hann mun einnig stýra afreksstarfi deildarinnar sem og knattspyrnuskóla Þróttar. Þess má geta að Ási lék með Þrótti árin 1998-1999 og á að baki 28 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim leikjum 8 mörk.

,,Knattspyrnudeild Þróttar bindur miklar vonir við ráðningu Ásmundar og óskar honum velfarnaðar í starfi," segir á heimasíðu Þróttar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner