Markvörðurinn Páll Gísli Jónsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍA.
Hinn 31 árs gamli Páll Gísli á rúmlega 120 keppnisleiki að baki með ÍA.
Í sumar var Páll Gísli varmarkvörður hjá ÍA þegar liðið komst upp úr 1. deildinni en Árni Snær Ólason stóð vaktina í markinu.
Hinn 31 árs gamli Páll Gísli á rúmlega 120 keppnisleiki að baki með ÍA.
Í sumar var Páll Gísli varmarkvörður hjá ÍA þegar liðið komst upp úr 1. deildinni en Árni Snær Ólason stóð vaktina í markinu.
,,Ég er bara virkilega ánægður með að hafa framlengt samning minn við félagið," sagði Páll Gísli í viðtali á heimasíðu ÍA.
;,Ég ætla mér að taka slaginn með liðinu í Pepsi-deildinni á næsta ári auk þess sem ég mun koma meira inn í markmannsþjálfun hjá félaginu, bæði hjá meistaraflokk og yngri flokkum félagsins. Það eru því bara spennandi tímar framundan sem ég hlakka til að takast á við.“
Athugasemdir