Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Theo Walcott sé ekki ennþá tilbúinn að koma aftur inn í byrjunarliðið.
Walcott sleit krossband í janúar en hann snéri aftur með varaliði Arsenal fyrr í mánuðinum.
Arsenal mætir Burnley á morgun en Wenger segir að Walcott muni ekki byrja þar.
,,Hann er ekki alveg tilbúinn. Hann hefur verið frá keppni of lengi til að byrja. Hann vill spila en á svona stundum reynir á þolinmæðina," sagði Wenger.

,,Leikmenn vilja spila en þeir átta sig síðar á að þeir voru ekki tilbúnir. Hann veit að hann er ekki alveg tilbúinn ennþá."
Athugasemdir