fös 31. október 2014 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Zidane fær að þjálfa áfram þar til áfrýjun er tekin fyrir
Zinedine Zidane.
Zinedine Zidane.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur greint frá því að Zinedine Zidane hafi fengið leyfi til að halda áfram þjálfun þar til áfrýjun á þriggja mánaða banni hans er tekin fyrir.

Þessi fyrrum landsliðsmaður Frakklands var dæmdur í þetta langa bann af spænska knattspyrnusambandinu þann 27. október fyrir að starfa sem þjálfari varaliðs Real Madrid án tilskilinna leyfa.

Madrídingar voru allt annað en sáttir með þessa ákvörðun en áfrýjunarnefnd knattspyrnusambandsins hafnaði þó áfrýjun þeirra í gær.

Zidane hefur þó fengið leyfi hjá íþróttaráðuneyti Spánar til að halda áfram þjálfun tímabundið á meðan málið er skoðað frekar.

Zidane verður því á hliðarlínunni þegar Castilla mætir Rayo Vallecano B á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner