lau 21.apr 2012
Guardiola óskar Real Madrid til hamingju með titilinn
Úr leiknum á Nývangi í kvöld.
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur játað sig sigraðan í titilbaráttunni á Spáni. Sigur Real Madrid í kvöld kemur liðinu í sjö stiga forystu þegar fjórar umferðir eru eftir af spænsku úrvalsdeildinni.

Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið gegn Barcelona í kvöld en leikurinn endaði 2-1.

„Fyrst af öllu vil ég óska Madrid til hamingju með sigurinn og meistaratitilinn sem þeir tryggðu sér í dag," sagði Guardiola á blaðamannafundi eftir leikinn.

„Mínir leikmenn hafa verið í þessari stöðu áður og hafa sýnt að þeir geta risið upp. Við réðum vel við skyndisóknir Madrid í kvöld og þeir fengu ekki mörg færi. Á endanum gerðu þeir samt aðeins meira en við."

„Ég finn til með stuðningsmönnum. En leikmenn hafa verið að gefa sig alla í þetta svo ég vona að þeir sýni skilning. Nú eiga leikmenn að slaka aðeins á og svo einbeita sér að leiknum gegn Chelsea."

Barcelona tekur á móti Chelsea á þriðjudag í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Chelsea vann leikinn á Englandi 1-0.