lau 09.jún 2012
maggi@fotbolti.net
Þorkell Gunnar spáir í leiki dagsins á EM
 |
| Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson. |
Boltinn heldur áfram að rúlla á EM í dag en tveir afar áhugaverðir leikir eru á dagskrá í B-riðli.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson lýsir mörgum leikjum EM á RÚV og hann spáir í leiki dagsins.
Holland 3 - 0 Danmörk 16:00
Margir búast við því að Holland fari langt í keppninni, jafnvel alla leið. Ég held allavega að Danir verði ekki fyrirstaða fyrir Hollendinga. Danir eru með þokkalegt lið, en klárlega það veikasta í þessum dauðariðli. Hollendingar eru mun meira spennandi fram á við og sigra Dani næsta auðveldlega 3-0.
Þýskaland 1 - 1 Portúgal 18:45
Rétt eins og með Holland, eru Þjóðverjar taldir sigurstranglegir. Þarna mætast hins vegar stálin stinn og ég held að Portúgal fari með stig út úr þessum leik. Ætla því að segja 1-1 jafntefli í þó opnum og skemmtilegum leik.
|