sun 15.júl 2012
maggi@fotbolti.net
Kristján G.: Búnir að föndra við að láta Guðjón spila senter
 |
| Kristján Guðmundsson í viðtalinu eftir leik. |
,,Við erum mjög ánægðir og ekki síður fegnir að hafa sigrað. Flest stigin okkar hafa komið á heimavelli í sumar og við settum það upp að við ættum að koma til baka á heimavelli og sýna að við getum unnið nokkra fótboltaleiki," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Vals eftir 3-1 sigur liðsins á FH í kvöld.
Valsmenn voru mjög fastir fyrir í leiknum í kvöld. ,,Það var lagt upp með það að vera fastir fyrir. Leikurinn er í beinni í sjónvarpinu og við látum ekki spyrjast út að við gefum eftir í beinni á heimavelli."
Guðjón Pétur Lýðsson spilaði í fremstu víglínu Vals en ekki á miðjunni eins og vanalega. Kristinn Freyr Sigurðsson lék síðan fyrir aftan hann.
,,Guðjón Pétur heldur boltanum gríðarlega vel og við erum búnir að föndra þetta alla vikuna að láta hann spila senter. Hann gerir aðra leikmenn betri í kringum sig og er hættulegur, hann var óheppinn að skora ekki."
,,Kristinn er nokkuð vanur því að spila inni á miðjunni og við þurftum leikmenn sem eru betri á boltann og þora að halda honum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
|