fös 20.feb 2009
Lengjubikarinn: FH lagði ÍA í átta marka leik
Guðjón Heiðar Sveinsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson í baráttunni í kvöld. Þeir skoruðu báðir.
ÍA 3-5 FH
1-0 Andri Júlíusson ('15)
1-1 Tryggvi Guðmundsson ('26)
1-2 Tryggvi Guðmundsson ('47)
2-2 Guðjón Heiðar Sveinsson ('59)
3-2 Sigurjón Guðmundsson ('77)
3-3 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson ('81)
3-4 Eiríkur Viljar H. Kúld ('85)
3-5 Atli Viðar Björnsson ('89)

Það var markaveisla í opnunarleik Lengjubikarsins í kvöld þegar heimamenn í ÍA tóku á móti Íslandsmeisturum FH í Akraneshöllinni. Lokatölur urðu 3-5 fyrir FH.

Heimamenn náðu forystunni eftir stundarfjórðung með marki Andra Júlíussonar sem hafði sloppið innfyrir vörn FH en Tryggvi Guðmundsson jafnaði metin fyrir FH um miðjan hálfleikinn eftir að hafa prjónað sig í gegnum varnarmenn Skagans og staðan í hálfleik jöfn, 1-1.

Tryggvi kom svo FH yfir að nýju strax í byrjun síðari hálfleiks en þá kom góður kafli hjá Skagamönnum sem komust í 3-2 um miðjan síðari hálfleikinn með mörkum Guðjóns Heiðars Sveinssonar og Sigurjóns Guðmundssonar,

FH-ingar kláruðu leikinn svo með þremur mörkum á síðustu tíu mínútunum. Fyrst skoraði Ásgeir Gunnar Ásgeirsson með bylmingsskoti upp í þaknetið, þá Eiríkur Kúld og svo síðast Atli Viðar Björnsson. Lokatölur 3-5 fyrir FH og Lengjubikarinn fer vel af stað með markaveislu í fyrsta leik.