þri 16.mar 2010
maggi@fotbolti.net
Leikmönnum úr HK/Víkingi boðið í heimsókn til Malmö
 |
| Ásthildur Helgadóttir (í miðjunni) þjálfar unglingalið Malmö. |
Halldóra Björk Sigurðardóttir, þjálfari 2. flokks kvenna hjá HK/Víkingi, dvaldi á dögunum hjá sænska stórliðinu Malmö. Í framhaldi af því hefur HK/Víkingi verið boðið að senda tvo leikmenn til æfinga með unglingaliði félagsins í vor en þetta kemur fram á vef HK.
Einn af þjálfurum unglingaliðsins er Ásthildur Helgadóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands sem áður lék sem atvinnumaður með Malmö.
Með aðalliði Malmö leika landsliðskonurnar Þóra B. Helgadóttir og Dóra Stefánsdóttir.
Heimsókn Halldóru til Malmö var liður í endurmenntun hennar sem þjálfari en hún segir að HK/Víkingur stefni á að nýta boð Malmö um að senda þangað tvo leikmenn strax í vor.
,,Nánari tímasetning er ekki komin en við þurfum að finna tíma sem hentar báðum liðum. Stúlkurnar verða í eina viku og æfa með unglingaliðinu, og þetta er frábært tækifæri fyrir ungar stelpur til að sýna sig og sanna á æfingum hjá einu fremsta kvennaliði Evrópu," sagði Halldóra Björk en nánar má lesa um heimsókn hennar á vef HK.
|