Þetta er grein með mikið af skemmtilegum staðreyndum Heimsmeistaramótsins sem ritarar fótbolta.net hjálpuðust að við að setja saman.

  • Kamerún var fyrsta liðið frá Afríku til að komast í átta liða úrslit HM. Það var árið 1990 á Ítalíu, en elsti maður sem hefur spilað á HM var drifkraftur liðsins. Hann heitir Roger Milla (Albert Roger Mooh Miller) og var 38 ára gamall, en á HM 1994 í Bandaríkjunum var hann 42 ára gamall og bætti metið.
  • Mexíkóborg í Mexíkó er sú höfuðborg sem hefur hýst flesta leiki tengda Heimsmeistaramótinu, eða 74 alls. 23 þeirra voru í lokakeppni HM, en hinir í undankeppni.
  • Aðeins 7 lönd af 76 sem hafa tekið þátt hafa unnið Heimsmeistaramótið.
  • Þjóðverjar hafa tapað flestum úrslitaleikjum HM, en þeir eru fjórir (1966, 1982, 1986 og 2002).
  • Just Fontaine skoraði 13 mörk á Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð 1958 en það hefur engum tekist að skora jafn mörg mörk á einu móti. Hann spilaði með franska landsliðinu sem endaði í 3. sæti eftir 6-3 sigur á Vestur-Þýskalandi. Hann spilaði 6 leiki og skoraði í hverjum einasta.
  • Það var ekki fyrr en í Mexíkó 1970 sem varamenn, gul og rauð spjöld komu til sögunnar á HM.
  • Jose Batista leikmaður Úrúgvæ var aðeins 56 sekúndur inná vellinum í leik gegn Skotlandi á HM 1986 þegar hann fékk rautt spjald snemma leiks.
  • Daniel Passarella var landsliðsþjálfari Argentínu 1998. Hann sagðist ekki vilja leikmenn með langt hár eða eyrnalokka, og þurftu menn á borð við Juan Sebastian Verón og Gabriel Batistuta að fara í klippingu. Veron lét raka sig sköllóttann en Batistuta stytti hárið. Passarella spilaði með argentínska landsliðinu á sínum ferli sem leikmaður og var nefndur af Pele sem einn af 125 bestu knattspyrnumönnum allra tíma.
  • Allir stafir enska stafrófsins hafa komið fram í nöfnum leikmanna á HM.
  • Paolo Rossi var markahæstur leikmaður HM og ítalska landsliðsins 1982 og átti gríðarlega stóran þátt í sigri liðsins á mótinu, sérstaklega með þrennu í 3-0 sigri gegn Brasilíu. Hann mátti spila á mótinu fyrir einskæra heppni, vegna þess að tveimur vikum fyrir það kom hann úr banni eftir tveggja ára bann frá knattspyrnu vegna mútuskandals.
  • Erik Nilsson og Alfred Bickel, frá Svíþjóð og Sviss, eru einu mennirnir sem spiluðu á HM fyrir og eftir Síðari Heimsstyrjöldina.
  • Ramon Quiroga er fæddur í Argentínu en er einnig ríkisborgari í Perú. Hann var þekktur sem ,,el loco" eða ,,hinn brjálaði" í Suður-Ameríku og var landsliðsmarkvörður Perú á HM 1978. Hann er mest þekktur fyrir þetta Heimsmeistaramót vegna þess að fyrst fékk hann gult spjald gegn Póllandi á þeirra vallarhelming.
  • Á sama móti var Perú komið í átta liða úrslit, en þau voru spiluð í tveimur riðlum þar sem fyrsta sæti hvers riðils mættist í úrsltialeiknum, en annað sæti hvers riðils í leiknum um þriðja sætið. Argentína og Brasilía voru bæði með 3 stig (2 stig fyrir sigur og innbyrðisjafntefli) en Brasilía var með betri markatölu og átti leik við Pólland. Ramon Quiroga, fæddur í Argentínu en spilandi í marki Perú, ,,leyfði" Argentínu að skora sex mörk á sig á sama tíma og Brasilía vann 3-1 gegn Póllandi. Það var til þess að Argentína komst í úrslitin á kostnað Brasilíu og vann þar Hollendinga 3-1 eftir framlengingu.
  • Josip Simunic varnarmaður Króatíu var fyrsti leikmaðurinn á HM til að fá þrjú gul spjöld í sama leik, sem var gegn Ástralíu. Fyrst fékk hann spjald fyrir brot á Harry Kewell, svo fékk hann annað gult spjald fyrir ljóta tæklingu en ekkert rautt spjald fór á loft og leikmenn kvörtuðu ekki. Eftir leikinn fékk Josip Simunic svo þriðja gula spjladið sitt fyrir að ýta dómaranum eftir að hann flautaði leikinn af. Dómarinn, Graham Poll, áttaði sig ekki á mistökum sínum fyrr en hann sá það í fréttunum.
  • Það var ekki venjulegt að skiptast á treyjum eftir leiki fyrr en 1970. Þá mættust Brasilía og England í leik sem endaði 1-0 fyrir Brasilíu, en eftir leikinn skiptust tveir af bestu leikmönnum heimsins á þeim tíma á treyjum. Það voru Pelé og Bobby Moore. Eftir að þeir skiptust á treyjum fóru aðrir að skiptast á treyjum, en nú er það algengt - ef ekki venjulegt - að skiptast á treyjum eftir leik.