Fótbolti.net
Fótbolti ehf
Kt: 600907-0180
Stórhöfða 15
112 Reykjavík
Sími: - GSM: 894 9200
Netfang:
fotbolti@fotbolti.net
Fótbolti.net er vefsíða sem fjallar einungis um fótbolta og fótboltatengd málefni.  Síðan fór fyrst í loftið 15. apríl 2002 en hefur vaxið og dafnað síðan. 

Í dag er Fótbolti.net vinsælasti íþróttavefur Íslands og  níundi vinsælasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Verslunarráðs og Modernus.

Fótbolti.net er sjálfstætt starfandi vefsíða ótengd öðrum fjölmiðlasamsteypum en á í góðu samstarfi við Sky á Bretlandi, Sýn og fleiri aðila.  Rekstur síðunnar er tryggður í gegnum auglýsingasamninga.

Hönnun og forritun síðunnar, merkis og öll önnur tæknivinna er í höndum Design EuropA sem er íslenskt fyrirtæki með starfsemi í nokkrum löndum.
Nokkrar staðreyndir um fótbolta.net:
Fyrsta frétt Fótbolta.net var birt 15. apríl 2002 og fjallaði um Ellert Danelíusson leikmann utandeildarliðs Hvats. Fréttina má lesa með því að smella hér.

Fótbolti.net er ein af fáum vefsíðum á Íslandi sem næst úti á hafi. Fjölmörg skip sem gera út frá Íslandi eru ákrifendur að Sjávarfréttum sem senda Fréttir Fótbolta.net á hverjum klukktuíma í skipin.

Samkvæmt samræmdri vefmælinu Modernus og Verslunarráðs hefur Fótbolti.net verið 7. - 10. vinsælasta vefsíða landsins undanfarin ár. Vikulega sækja hana rúmlega 30 þúsund gestir um 200 þúsund sinnum. Flettingar eru um ein milljón á vikutímabili. Forsíðan er hlaðin 75-100 þúsund sinnum á dag!

Fótbolti.net á gott samstarf við Sky fréttastofuna í Bretlandi. Fótbolti.net sendir reglulega fréttir til Sky sem svo eru birtar á vef þeirra og Sky sendir fréttir á Fótbolta.net sem eru fullunnar hér á landi og birtar á Fótbolta.net.

Útlitshönnun Fótbolta.net er unnin í Rússlandi og forritun og kóðun er að mestu leyti gerð í Úkraínu en hluti í Rúmeníu. Öll hönnun fyrir prent er svo gerð í Indonesíu og stærri hugbúnaður gerður á Indlandi. Allt er þetta gert af starfsfólki íslenska vefsíðufyrirtækisins Design EuropA í þessum löndum.

Íþróttadeildir allra stóru fjölmiðlanna á Íslandi og fjölmargra lítilla nýta sér Fótbolta.net regulega í leit að fréttum og byggja oft fréttir sínar á því sem þeir lesa á Fótbolti.net.

Fótbolti.net reynir að skila sínu til samfélagsins með því að gefa í góðgerðarmál. Þetta höfum við gert í nokkur skipti með því að bjóða upp áritaðar fótboltatreyjur þar sem allt andvirði treyjunnar hefur runnið til góðgerðarmálefnis.

Þrátt fyrir að hafa endinguna .net er Fótbolti.net íslensk vefsíða sem er hýst á Íslandi. Vefþjónninn sem hýsir síðuna er staddur í hýsingarsal ANZA þar sem mikið er lagt uppúr öryggi og góðri tengingu. Á þeim tíma síðan Fótbolti.net fór fyrst í loftið hefur hún verið hýst á fjórum mismunandi stöðum. Fyrst á Englandi, þá í California, svo Texas og í Reykjavík frá því árið 2004.

Vinsælasta frétt Fótbolta.net er frá því í október 2005 og fjallar um Berbrjósta konu á leik í ensku 1. deildinni. Fréttin var skoðuð af 9412 ip tölum.

90% gesta á Fótbolti.net eru karlkyns, aðeins 10% eru kvenkyns.

Í könnun meðal lesanda Fótbolta.net sögðust 99% vera ánægðir með vefinn.

90% lesenda síðunnar eru á Íslandi, 3% í Danmörku og restin dreifist á 77 önnur lönd. Meðal landa sem gestir síðunnar koma á eru Qatar, Eþíópía, Íran, Kambódía og fleira en þar sem síðan er á íslensku eingöngu má gera ráð fyrir að um sé að ræða Íslendinga í þessum löndum.

Síðan er mikið sótt allan ársins hring og alveg óháð því hvaða dagur er. Sem dæmi má nefna að á milli 18-19 á aðfangadagskvöld komu á síðuna 568 innlit og jókst svo fram eftir kvöldi. Á aðfararnótt nýársdags milli 00 og 01 voru innlitin nákvæmlega þau sömu, 568.

Helstu fjölmiðlar landsins hafa veitt síðunni athygli og hafa ritstjórar og framkvæmdastjóri hennar meðal annars verið í viðtali á NFS, RÚV, Stöð 2, Sýn,Skjá Einum, Rás 2, Bylgjunni, Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og Blaðinu.

Yfir 20 aðilar sjá um efnisvinnslu á Fótbolta.net, fréttaritarar, ljósmyndarar og fleiri. Sá yngsti sem hefur starfað við síðuna var 13 ára þá en er í dag 18 ára og er ritstjóri síðunnar. Sá elsti sem starfar við síðuna í dag er 55 ára.