Allar ferðir

El Plantio er frábær áfangastaður fyrir kylfinga sem vilja dvelja í flottum íbúðum og spila á góðum keppnisvelli sem er stutt frá flugvelli. Íbúðahótelið er rúmgott og er staðsett við hliðina á golfvellinum. Golfvöllurinn er 18 holur sem býður upp á skemmtilegan 9 holu par 3 völl og gott æfingasvæði. Miðborg Alicante er svo aðeins í 10 mínútna fjarlægð með úrval góðra veitingastaða. Borgin Alicante er staðsett í hjarta Costa Blanca héraðsins á Spáni og iðar af mannlífi ásamt því að vera gullfalleg gömul spænsk borg með heillandi miðbæ. Þar ríkir mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast vel í þeim fjölda framúrskarandi veitingastaða sem eru á svæðinu. El Plantio hefur verið einn vinsælasti áfangastaður íslenskra kylfinga til margra ára.

EL PLANTIO GOLF RESORT****

El Plantio Golf Resort er vinsælt 4 stjörnu golfhótel staðsett í um 10-15 mínútna fjarlægð frá Alicante flugvelli og stutt í miðborg Alicante. Íbúðirnar eru vel búnar með tveimur svefnherbergjum, sólbaðsaðstöðu og fínum veitingastað sem býður upp á úrval miðjarðarhafsrétta.

Íbúðirnar eru með tveimur svefnherbergjum og eru 104 fermetrar útbúnar öllu því helsta. Þar má finna eldhús, baðherbergi, hárþurrku, stofu, borðstofu, loftkælingu, sjónvarp, þvottavél og þurrkara. Svalir eða verönd fylgja hverri íbúð. Annað svefnherbergið er með hjónarúmi, hitt er með tveimur rúmum.

Allar íbúðir eru búnar tveimur plasma sjónvörpum, hitastýrikerfi, öryggishólfi,  baðherbergi, stofu, borðstofu, góðum svölum eða verönd, fullbúnu eldhúsi og þvottahúsi með þvottavél og þurrkara. Íbúðirnar eru um 500 metra frá klúbbhúsinu.

*Athugið að seinni hringur er pantaður eftir fyrri hring dagsins og er háður umferð vallarins.

Rástímar eru yfirleitt á milli 09:00 – 11:00.

Hafðu samband við golf@uu.is varðandi óskir um rástíma.

Skoðaðu verð og dagsetningar í bókunarvélinni okkar hér að ofan. Við getum sérsniðið ferðina að þínum þörfum – hafðu samband við golf@uu.is.

Alicante borgin

Í Alicante er að finna fjölda áhugaverðra safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Strendur Alicante eru fallegar og þar er mannlífið litríkt. Næturlíf borgarinnar er alþekkt og geta skemmtanaþyrstir ferðalangar valið á milli fjölda bara og næturklúbba sem er aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá El Plantio.

Innifalið í verði er:

  • Beint flug til og frá Alicante
  • Innritaður farangur og handfarangur
  • Flutningur á golfsetti
  • Gisting á El Plantio Golf Resort með morgunverði eða hálfu fæði
  • Á meðan á dvöl stendur er einn 18 holu golfhringur og golfbíll á dag innifalinn (á ekki við á komu- eða brottarardegi)
  • Auka golfhringur seinni hringur á sama degi kostar ekkert en golfbíll kostar 2.000kr á mann m.v 2 saman í bíl – fyrir einn í bíl 4.000kr – *þarf að panta og greiðast fyrirfram